- Þú ert hér: olgerdin.is
- um ölgerðina
- framleiðsluvörur
- gos og vatn
Gos og vatn
Ölgerðin er einn stærsti framleiðandi á gosdrykkjum og kolsýrðu vatni hérlendis. Allt frá því Ölgerðin Egill Skallagrímsson var sett á laggirnar hefur fyrirtækið framleitt gosdrykki og var t.a.m. fyrsta framleiðsluvaran Egils Maltextrakt, sem enn þann dag í dag nýtur mikillar hylli. Auk þess ættu drykkir eins og Egils Appelsín og Kristall að vera flestum lansdmönnum af góðu kunnir.
Gosdrykkir, eða gos, eru kolsýrðir, óáfengir drykkir, sem flestir innihalda kolsýrt vatn ásamt bragð-, litar- og sætuefni. Sögu gosdrykkja má rekja aftur til 17. aldar, en þá var sett á markaður drykkur sem var nokkurs konar límonaði, vatn og sítrónusafi, en hunang var notað til að gera drykkinn sætan. Árið 1676 fékk fyrirtækið Compagnie des Limonadiers í París einkaleyfi til sölu á slíku límonaði, en sölumenn fyrirtækisins gengu um götur Parísar með drykkinn í tönkum í bakpokum ásamt nokkrum glösum, en drykkurinn var seldur þyrstur borgarbúum.
Árið 1767 uppgötvaði Englendingurinn Joseph Priestley fyrstur manna hvernig átti að blanda saman kolsýru og vatni, þannig að útkoman væri kolsýrt vatn. Þetta gjörbylti allri gosdrykkjagerð og voru framleiðendur fljótir að tileinka sér þessa aðferð. Sérstaklega varð þetta vinsælt í Evrópu og Bandaríkjunum en í dag eru gosdrykkir seldir um heim allan, af öllum stærðum og gerðum.
Ölgerðin leggur kapp á að framleiða vörur sem eru einfaldlega betri og eiga neytendur að geta treyst því, að vörur fyrirtækisins eru gæðavörur.
Egils Maltextrakt: Maltið er jafngamalt Ölgerðinni, hefur verið framleitt síðan 1913. Uppskriftin að Malti er eitt best varðveitta leyndarmálið í íslenskum iðnaði, og þekkir það enginn nema bruggmeistari Ölgerðarinnar.
Egils Appelsín: Egils Appelsín er sá gosdrykkur sem bragðast best og gefur mesta bragðið af öllum gosdrykkjum. Eitt af flaggskipum Ölgerðarinnar, drykkur sem hefur verið framleiddur síðan 1955. Egils Appelsín er ferskt, fullt af gleði, sumri og sól.
Egils Mix: Egils Mix er engu líkt! Bráðskemmtileg blanda af ananas- og appelsínbragði. Séríslenskur drykkur, ómissandi á öllum stundum.
Egils Grape: Margir eru ginkeyptir fyrir Egils Grape. Bragðgóður drykkur við öll tækifæri.
Egils Hvítöl: Hvítöl er að stofni til það sama og Malt. Þó er minna af korni notað í Hvítölið og það verður því ekki eins sætt og Malt. Hvítöl er ávallt framleitt fyrir jólin, enda þykir mörgum það ómissandi þáttur í jólahaldinu.
Egils Jólaöl/Páskaöl: Blanda af Hvítöli og Appelsíni í dós. Aðeins framleitt um jól og páska.
Egils Malt og Appelsín: Þessi óviðjafnanlega blanda fæst í dós en er aðeins framleitt um jól og páska.
Egils Orka: Kraftmeiri orkudrykkur. Eini séríslenski orkudrykkurinn á markaðinum.
Kristall: Léttkolsýrt vatn með bragðefnum. Engum aukaefnum er bætt við Kristal. Kristall er ungur, ferskur, lífstílstengdur drykkur fyrir alla - Það sést hverjir drekka Kristal.
Kristall Plús: Kristall Plús er hollur, ferskur og bragðgóður drykkur fyrir þig og þína. Kristall Plús inniheldur holl bætiefni, dýpt í bragðinu og engin aukaefni.
Kristall Sport: Af hverju að drekka kaloríurnar sem þú varst að enda við að brenna? Kristall Sport er bragðgóður drykkur sem bætir þér daglegt vökvatap og inniheldur aðeins örfáar hitaeiningar. Kristall Sport bætir þér ekki aðeins vökvatap, heldur einnig vítamín- og steinefnatap.
Iceland spring: Einfaldlega hollasta og besta vatnið.



