olgerdin

Ölgerðin og Vogabær í samstarf

31.05.2010 | 10:16

Ölgerðin og Vogabær hafa gert með sér samning, um sölu og dreifingu Ölgerðarinnar á sósum og ídýfum undir merkjum E. Finnssonar.
 
Vogabær hefur framleitt ýmis konar sósur og ídýfur síðan 1985 sem eru Íslendingum af góðu kunnar og hafa fyrir löngu sannað gildi sitt. Ölgerðin er því stolt af því að geta boðið viðskiptavinum sínum upp á þessar gæða sósur og ídýfur.
 
Væntum mikils af samstarfinu
 
Samningur þessi er góður fyrir báða aðila, eykur við vöruval Ölgerðarinnar og tryggir vörum Vogabæ og E.Finnssonar mikla og góða dreifingu.
 
,,Við erum mjög ánægðir með að komast í samstarf við Ölgerðina og væntum mikils af samningnum og samstarfinu, ” sagði Björgvin Jón framkvæmdastjóri Vogabæ við undirskrift samningsins. Undir þetta tók E. Börkur Edvardsson, framkvæmdastjóri hjá Ölgerðinni.
 
Vörur E. Finnssonar eru þegar komnar í sölu hjá Ölgerðinni.
 
Til baka

Fréttir